Helvítis andskotans!!!! 



Ég gerði þau afdrifaríku mistök að kaupa símann minn í Símanum og hann bilaði 3mán seinna.. hann var í viðgerð í 5 vikur .. sótti hann í fyrradag .. hann hefur aldrei verið verri, ég fór með hann í viðgerð útaf skjá en núna er batteríið slæmt og hann frosin og ekki hægt að hringja eða eitt né neitt.. jájá! þá hafði aldrei verið gert við hann, heldur hann látinn liggja í fokkings 5vikur hjá þeim!!!!!!!



ég hata þetta fyrirtæki, drusludrasl!! og svo var ég látin fara með símann minn sjálf í viðgerð!! þeir sögðu að þetta væri ekki sér að kenna og blablabla
ég er brjáluð!! gaurinn bara já.. ég meina ég gæti gefið þér inneign en þú ert ekki í viðskiptum með símkortið þitt hjá okkur, og ég alveg, já!! sem betur fer!!
þetta er svosem ekki eina sem Síminn er alltaf að klúðra, mamma er með sjonvarpið í gegnum þetta drasl og það detta út sendingar að meðaltali 1 í viku til 1 sinni á tveggja vikna fresti þar sem ekkert sjónvarp er, en núna þá hefur mamma ekki haft sjónvarp í hátt í 2vikur!!!!! og ég er ekki að grínast!!! og þeir bara döö döö geta ekkert gert! þannig að mamma ætlar að fá endurgreitt og hætta hjá þessum fíflum og fara þar sem þjónustan er, hjá Ogvodafone takk fyrir"!
eeen.. jæja .. -varð aðeins að pústa
hehe
Það ætlar bara aldrei að hætta að snjóa marr! þetta er alveg svakalegt!
verst að allt brettadótið mitt er einhversstaðar í Þorlákshöfn og ég þyrfti nú eiginlega að fara að sækja það hmm..

Skólinn er byrjaður á fullu og sonna jújú.. en já, það er föstudagur í dag og ég ætla að kíkja ti lHjartars í fínu íbúðina hans í partý, hann er búinn að vera geggjað duglegur!! keypti íbúð, parketlagði allt og flísalagði og ætlar að gera lítinn bar úr eldhúsinnréttingunni!! pælið í snilld!! 
Svo á morgun er innflutningspartý hjá Maríu naríu og Árnný og þá verður tekið á því vúhúú
=Þ
-við erum búnar að kaupa gjöf handa ykkur girlz! úje 
en jæja, verð að fara heim til mín .. þar sem ég er sambandslaus við umheiminn.. ekkert net, enginn sími.. enginn fokking gsm .. og já!! verkstæðið spyr hvar þeir geta náð í mig og ég bara hvergi!!! ég á ekki heimasíma og þið eruð með símann minn !! því auðvitað hafði Síminn í Smáralindinni ekki haft rænu á ða láta mig fá lánssíma og þeir á verkstæðinu ekki með síma!!
þannig að ég lét þá fá nr hjá pabba og hann sækir símann.. en svo nátla getur samt pabbi ekkert frekar náð í mig, þannig að ég þarf bara að tékka á honum í vinnunni á hverjum degi þangað til að símadruslan er tilbúin! og hana nú!
En ég er hætt þessu nöldri hehe
sjáumst
=Þ
p.s. ég var í vísindaferð í Kaupþing, einhver benti mér á að ég hafði aldrei tekið það fram í síðasta bloggi
hehe ~Hrafnhildur Eva~